Cashmerini vettlingar
Cashmerini vettlingar
STÆRÐIR
Litlir / stórir
Litlir passa á fíngerðar hendur og stórir passa fyrir allflesta fullorðna
GARN
Cashmerini frá Gabo wool sem fæst hjá vetrargarn.is
50 g / 100 g
Athugið að ef annað garn er valið gæti það haft áhrif á stærð flíkurinnar auk þess sem magnið gæti breyst
PRJÓNAR
nr. 3,5
Langir hringprjónar fyrir magic loop eða sokkaprjónar
Garnið er gefið upp á prjóna nr. 4 en til þess að vettlingarnir séu þéttari er gott að nota prjónastærð 3,5.
Aukið er út fyrir þumaltungu og þegar útaukningum er lokið eru þumallykkjurnar settar á hjálparband eða nælu og belgurinn prjónaður áfram í hring þar til kemur að úrtöku. Að því loknu eru þumallykkjurnar settar aftur á prjónana og þumallinn prjónaður í hring.
Vettlingar sem eru með þumli eins og þessir passa báðir á hvora hönd sem er.
Uppskriftin er mjög byrjendavæn.
Couldn't load pickup availability
